Íbúðagisting á Glerá 2 – afslöppun og afþreying á einstökum stað
Glerá 2 er staðsett rétt ofan við Akureyri við veginn upp í Hlíðarfjall í miðri afþreyingarparadís Norðurlands. Örstutt er niður í miðbæ Akureyrar og enn styttra er í hvers kyns afþreyingu. Aðeins 300 metrar eru í motocross, enduro og reiðhjólabrautir KKA. Frábærar gönguleiðir liggja upp Glerárdalinn, á Hlíðarfjall og Súlur og örstutt leið er á golfvöll Akureyringa. Í Kjarnaskógi er einstakt útivistarsvæði, grillaðstaða, göngustígar, leiktæki fyrir börn og það nýjasta eru frábærir fjallahjólastígar á heimsmælikvarða. Á veturna er svo Hlíðarfjallið málið – örstutt fyrir ofan húsið er eitt glæsilegasta skíðasvæði á landinu. Þaðan er oft hægt að renna sér alveg upp að dyrum frá toppi Hlíðarfjalls sem gerir brekkuna okkar að einni lengstu rennslisbrekku á landinu.
Húsið er ný standsett og eru öll tæki og aðstaða nýleg. Á Glerá eru leigðar út tvær rúmgóðar íbúðir. Á neðri hæðinni er gott pláss fyrir fjóra fullorðna í herbergi og svefnsófa í stofunni. Auðvelt er að bæta við fleiri rúmum ef menn vilja nýta plássið betur. Á efri hæðinni komast auðveldlega fyrir 10 manns í þremur mjög rúmgóðum tveggja manna (eða þriggja með aukarúmi) og tveimur eins manns herbergjum, auk svefnsófa í stofunni.
English